Var að koma úr fríi, þvílíkir dagar! Byrjaði á því að fara í
starfsmannaferð til Flateyjar, á leiðinni heim kom geggjuð þoka og
ratarsjáin í bátnum bilaði svo við stóðum bara í stefninu og
þeyttum þokulúðurinn!!! Björgunarsveitin kom svo og fylgdi okkur
til bryggju
Fór einnig í fjölskylduhestaferð, fórum upp í forvöð, síðustu
forvöð!! ehhe ok, þetta var sagt við mig áður en ég fór og mér
fannst þetta lúmskt fyndið! En þetta voru frábærir dagar, veðrið
hefði einfaldlega ekki getað verið betra og útsýnið á leiðinni var
einstakt. Grilluðum og veiddum í Hafurstaðavatni, algjör snilld.
Á leiðinni heim var hún Gola (hryssa) svo æst að hún rauk með mig
2x sinnum..... ekki sátt sko! En ég barðist við hana alla leiðina
og uppskar svöðu sár (ekki á rassinum samt) og annar litli puttinn
minn er ennþá dofinn, finn ekki fyrir honum! Hef nú ekki vitað
annað eins.
Vinnan er að verða búin, er ekki að nenna meir, verð svo stoltur
starfsmaður Fjallalambs í sept, svo eru hlutirnir óráðnir. Endilega
látið mig vita ef þið vitið um íbúð í R-vík og ef þið vitið um
vinnu þar líka, flott